Við erum systkinin Cecilía Rán, Birta Líf og Alex Þór




Cecilía Rán fæddist laugardaginn 26.júlí 2003 kl. 16.35 9 dögum yfir áætlaðan fæðingardag. Ég var 19 merkur og 56 cm :). Ég var í smá erfiðleikum að komast í heiminn og endaði með að mér var hjálpað með sogklukku og töng.

Birta Líf fæddist föstudaginn 8 ágúst 2008 eða á þessari flottu dagsetningu 08.08.08. Hún var 17 merkur og 51 cm og fæddist kl. 7.52 eða 8 mín í 8. Fæðingin gekk töluvert betur en hjá stóru systir.

Alex Þór fæddist mánudaginn 31.maí kl. 3.45. Hann var 17 merkur og 54 cm:)

Mamma okkar heitir Hrund Guðmundsdóttir (´81) og pabbi okkar heitir Rúnar Haraldsson (´74). Þau eru óendanlega hamingjusöm og rík að eiga svona yndislegar börn.

Við systur erum báðar ljón. Ég Cecilía Rán er rosalega fjörug og skemmtileg og algjör prakkari:). Hef alveg rosalega gaman af lífinu :). Ég er alveg ekta ljón híhí (sjá neðst á síðunni yfir ljón) og eigum ennþá eftir að komast að því hvernig ljónsmerkið passar við litlu systu ;).

Endilega kvittið í gestabókina hjá okkur því okkur þykir svo ofboðslega gaman að sjá hverjir eru að kíkja við og endilega kíkið svo aftur og aftur á okkur ;)

Síðan er læst en endilega sendið póst ef þið viljið kíkja og við sendum lykilorðið. hrg1@hi.is



Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.



Mamma er Konan

Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.

Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.

Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.

Mamma er besta kona í heimi.



Pabbi er Maðurinn

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.

Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.

Samt veit hann allt !!

Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.

Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.

Pabbi er besti maður í heimi.



Aníka Mjöll og Katla Rún


Adolf Þór og Alexander Óskar

Aron Viðar

Ástrós Thelma

Baltasar Dagur

Brynhildur Anna

Emilía Ýr og Kristján Freyr

Glódís Líf

Guðný Helga

Fey

Helena Ósk og Hjörtur

Hörður Sölvi

Ingvar Andri, Elín Rósa og Matthías Ingi

Magnús Ari

Sara Björk og Einar Björn



ELSKU MAMMA OG PABBI

Ég er með svo litlar hendur,
ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni
Fæturnir á mér eru svo stuttir,
farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir
Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað fallegt,
ég skil það ekki
Horfðu á mig þegar ég tala við þig,
þá veit ég að þú ert að hlusta
Ég hef viðkvæmar tilfinningar,
ekki vera alltaf að skamma mig
Leyfðu mér að gera mistök
án þess að mér finnist ég vitlaus
Ekki búast við því að myndin sem ég teikna
eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið,
elskaðu mig fyrir að reyna
Mundu að ég er barn, ekki fullorðin vera,
stundum skil ég ekki það sem þú segir
Ég elska þig svo mikið, elskaðu mig bara fyrir að vera ég,
ekki fyrir eitthvað sem ég geri